Að áliðnum degi

Forsíða kápu bókarinnar

Christine og Alex eiga að baki þrjátíu ára nána hjónavináttu við Lydiu og Zachary. Kvöld eitt hringir Lydia af sjúkrahúsinu í miklu uppnámi, Zachary hefur fengið hjartaáfall og er látinn. En harmur þeirra sem eftir sitja þjappar þeim ekki saman, gömul leyndarmál og gremja koma smám saman upp á yfirborðið og það hriktir í stoðum vináttunnar.