Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Að drepa hermikráku

Forsíða bókarinnar

Að drepa hermikráku kom fyrst út í Bandaríkjunum undir heitinu To Kill a Mockingbird árið 1960 og hefur nú selst í yfir 40 milljónum eintaka. Höfundur bókarinnar, skáldkonan Harper Lee, hlaut Pulitzer-verðlaunin fyrir hana en bókin er afar áhrifamikil og frábærlega skrifuð þar sem kímni og alvarleiki renna saman í töfrandi frásögn.

Að drepa hermikráku kom fyrst út í Bandaríkjunum undir heitinu To Kill a Mockingbird árið 1960 og hefur nú selst í yfir 40 milljónum eintaka. Höfundur bókarinnar, skáldkonan Harper Lee, hlaut Pulitzer-verðlaunin fyrir hana en bókin er afar áhrifamikil og frábærlega skrifuð þar sem kímni og alvarleiki renna saman í töfrandi frásögn. Undirtónninn er raunsönn lýsing á aldarfari í suðurríkjum Bandaríkjanna á fyrri hluta síðustu aldar, fordómum, kynþáttamismunun en líka manngæsku og samstöðu. Þar sem barn segir söguna verður lýsingin enn sterkari og áhrifameiri. Bókin hefur ekki áður komið út á íslensku, en þýðandi er Sigurlína Davíðsdóttir.