Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

John Adderley - fyrsta bók Að leikslokum

Forsíða bókarinnar

Þegar sænskættaði FBI-fulltrúinn John Adderley vaknar á sjúkrahúsi í Baltimore með skotsár á brjósti veit hann að hann er stálheppinn að vera á lífi. Á sömu sjúkrastofu liggur maðurinn sem beindi byssu að honum sólarhring áður. Að leikslokum er fyrsta bókin um John Adderley. Bókin var valin besta nýja glæpasagan í Svíþjóð 2020.

Tíu árum fyrr, í Karlstad í Svíþjóð, leita Heimer og Sissela Bjurwall að dóttur sinni Emelie. Hún er einkaerfingi mikilla auðæfa og foreldrarnir óttast að henni hafi verið rænt. Í kjölfar þess að ásamt sæði finnst blóð úr stúkunni er ungur maður handtekinn. Hann neitar sök og þar sem lík stúlkunnar finnst ekki sleppur hann við ákæru.

Forvitni Johns Adderley vaknar þegar hann fær gögn um þetta gamla mál í hendur. Að loknum réttarhöldum þar sem hann ber vitni gegn höfuðpaurum í eiturlyfjahring fer hann huldu höfði í vitnavernd. John ólst upp í Svíþjóð og hann tengist hvarfi Emelie á ákveðinn hátt. Hann krefst þess að vera fluttur til gamla landsins og hefur störf hjá nýrri deild lögreglunnar í Karlstad þar sem þetta mannshvarf er rannsakað að nýju. Á sama tíma vofir hefnd eiturlyfjabarónanna yfir John.