Ævintýrapáskar

Forsíða kápu bókarinnar

Ævintýrapáskar er þriðja bók Guðlaugar Jónsdóttur en hún var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir bók sína Í huganum árið 2021. Bækur Guðlaugar eru kjörnar til samlesturs barna og fullorðinna.

Bráðskemmtileg saga sem segir frá viðburðaríku páskafríi nokkurra barna hjá afa og ömmu á Ísafirði.

Bærinn skartar sínu fegursta í blíðuveðri og nóg er af snjó til að fara á skíði og byggja snjóhús. Allir fara á hátíðina Aldrei fór ég suður, meira að segja músin Blær, og þar gerast ýmis atvik, bæði spennandi og rómantísk.