Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Ástand Íslands um 1700

Lífshættir í bændasamfélagi

  • Höfundar Árni Daníel Júlíusson, Björgvin Sigurðsson, Guðmundur Jónsson, Ingibjörg Jónsdóttir, Ólöf Garðarsdóttir, Óskar Guðlaugsson og Sigríður Hjördís Jörundsdóttir
  • Ritstjóri Guðmundur Jónsson
Forsíða kápu bókarinnar

Hvernig var að búa á Íslandi á tímum bændasamfélagsins, landi bænda og sjómanna, höfðingja og almúgamanna? Í bókinni er lýst lífsháttum Íslendinga í upphafi 18. aldar og fjallað um fjölskyldur og heimili; jarðir, byggðaskipan og búsvæði; lífskjör þjóðfélagsstétta; fátækt og ríkidæmi.

Árið 1702 sendi Danakonungur rannsóknarnefnd til Íslands til að gera úttekt á ástandi lands og þjóðar. Nefndin tók saman manntal, kvikfjártal og jarðabók, sem veita einstaklega nákvæmar upplýsingar um lífskjör Íslendinga. Fjölskyldur og heimili, byggð og búsvæði, jarðaskipan og ólík húsakynni fólks birtast ljóslifandi í þessum heimildum. Lýst er stöðu og hag ólíkra stétta og hópa allt frá höfðingjum til lausingja og ómaga. Eignarhald á jörðum er kannað og leitaði svara við spurningunni: Hverjir áttu Ísland?

Bókin byggist á einstökum heimildum jarðabókarnefndarinnar svonefndu 1702–1714.