Ástin finnst á jólamarkaðinum
Bækur Jo Thomas hafa notið fádæma vinsælda bæði hér á landi og erlendis og er þetta þriðja jólabókin sem kemur út á Íslandi. Bókum Jo Thomas hefur verið lýst sem „einu stóru faðmlagi“.
Connie, sem sér um matarsendingar á dvalarheimili eldri borgara, hefur einum of oft lent í stefnumótaslysum á netinu. Hún hefur verið særð, rænd og móðguð og þarf að hugsa um son sinn, svo að nú hikar hún. Þá skipuleggur ein konan á dvalarheimilinu stefnumót fyrir hana á fallegum þýskum jólamarkaði – gegn því loforði að hún taki með sér heila rútu af ellilífeyrisþegum ... Jólaljósin sindra og ilmur af heitum piparkökum liggur í loftinu á gamla markaðstorginu þegar Connie heldur á stefnumótið með gátlista yfir það sem tilvonandi maki verður að hafa til að bera. Bakarinn Henrich uppfyllir öll skilyrðin en þegar Connie hittir William, keppinaut Henrichs, fer hún að velta fyrir sér hvort það sé rétta leiðin að haka við á lista. Mun draumur hennar um ást rætast þessi jól og ef svo er – með hverjum?