Auðnar

Forsíða kápu bókarinnar

Álfana hafði dreymt um að eignast barn í ár og aldir. Þeir höfðu skrifað það í skýin, hvíslað því að fjöllunum og hver að öðrum. „Já, takk – bara eitt lítið barn,“ hvísluðu þeir.

Þeim varð loksins að ósk sinni þegar Auðnar litli birtist, undurfallegur og engum líkur. Nú áttu álfarnir þá ósk heitasta að Auðnar myndi vaxa vel og dafna. Þeir kepptust við að annast drenginn sinn og lífið var gott ... allt þar til frændálfarnir komu til sögunnar.