Bænabókin okkar

Forsíða kápu bókarinnar

Bók um trú, bæn og samfélag sem fléttast saman í djúpri visku og innsýn í mannlega tilveru. Í kjölfar árangursríkrar krabbameinsmeðferðar höfundar varð þessi bók til. Fyrirbænir stórs hóps samferðafólks gáfu höfundi andlegan styrk og eldmóð til að halda lífsvoninni vakandi hvern dag. Hún fékk með sér hóp fólks til að skrifa bænirnar.

Bænabókin okkar Texti: Bók um trú, bæn og samfélag sem fléttast saman í djúpri visku og innsýn í mannlega tilveru.

Þemu bókarinnar eru fjölmörg og inn í hvert þema fléttast sögur af Jesú og samdi Jóna Hrönn bænakveikjur út frá þeim. Þemun eru: Gleði, Gestrisni, Foreldraábyrgð, Endurfæðing, Seigla, Skömm, Fyrirgefning, Reiði, Skilyrðislaus kærleikur, Sorg, Jaðarsetning, Samlíðun, Virðing og vinátta, Hugrekki, Innsæi, Samfélag, Angist, Friður, Ofbeldi, Krossinn og Upprisa. Þá er í bókinni kafli um Sæluboð Jesú, boðorðin tíu og persónulegar trúarjátningar nafngreindra samferðamanna. Þetta er bænabók á tungumáli nútímafólks sem tekur á aðstæðum þess í daglegu lífi, bókin er verkfæri til þess að mæta áskorunum.