Huldurit nr. II BirkiVist – BirkiVera
Birki í menningu, listum og lífinu
Við samvist birkis og mannfólks á Íslandi hefur skapast einstakur menningarheimur. Fræða- og listafólk fjalla hér um fagurferðilegt, menningarlegt og samfélagslegt gildi birkis og veitt er innsýn í upplifun fólks af birkiskógum. Bókin er hluti af þverfaglega verkefninu BirkiVist og ritröðinni Huldurit sem helguð er umhverfishugvísindum.
Greinasafnið BirkiVist – BirkiVera leiðir lesendur inn í þann menningarheim sem samvist birkis og mannfólks á Íslandi hefur skapað. Í bókinni er fjallað um fagurferðilegt, menningarlegt og samfélagslegt gildi birkis frá fjölbreyttum sjónarhornum. Við heyrum raddir listamanna og hönnuða, könnum birtingarmyndir birkis í bókmenntum, fáum innsýn í upplifun fólks af því að dvelja í birkiskógum og kynnumst þverfaglega rannsóknar- og þróunarverkefninu Endurheimt birkivistkerfa á 21. öld – áskoranir, leiðir og ávinningur, eða BirkiVist eins og það hefur verið kallað.
BirkiVist – BirkiVera er annað bindi ritraðarinnar Huldurit þar sem birtar eru niðurstöður rannsókna á sviði umhverfishugvísinda. Ritin eru innlegg í samtímaumræðu um tengsl manns og náttúru á tímum loftslagsvanda og taps á líffræðilegum fjölbreytileika.