Bjarmaband

Frosti Fjalar

Forsíða kápu bókarinnar

Bókin kom út í tengslum við samnefnda sýningu í Hafnarborg. Í útgáfunni er birt úrval verka Frosta Fjalars, auk ljósmynda og texta eftir Ásdísi Spanó, Kristínu Ástu Kristinsdóttur og Aðalstein Ingólfsson sem varpa ljósi á myndlist hans og feril. Ljósmyndir eru eftir Kristínu Ástu Kristinsdóttur.

Bókin dregur fram umfangsmikið ævistarf Frosta, sem starfaði um áratugaskeið að mestu utan hins opinbera myndlistarvettvangs. Í textum fjalla höfundar meðal annars um geómetríska formgerð verkanna, rannsókn listamannsins á lit, línu og verk hans í samhengi íslenskrar abstraktlistar. Hönnun og umbrot annaðist Helga Gerður Magnúsdóttir.