Sería Sögufélags Bréfið sem leiddi til byltingar - 1807
Haustið 1807 ríkti stríð í Evrópu. Siglingar til Íslands voru í hættu. Magnús Stephensen ákvað að skrifa bréf til Englands og leita hjálpar. Fyrir röð tilviljana leiddi það til þess að enskir sápukaupmenn rændu völdum á Íslandi og yfir landið var settur danskur túlkur þeirra, Jörgen Jörgensen. Hér er fjallað um þessa ótrúlegu atburðarás.
Magnús Stephensen háyfirdómari hafði þungar áhyggjur af ástandinu á Íslandi. Danir voru komnir í stríð við Englendinga og siglingar til Íslands voru í hættu. Magnús taldi að ef aðflutningar til landsins tepptust gæti hungursneyð vofað yfir landsmönnum. Hann ákvað að skrifa bréf til gamals vinar föður síns frá Englandi, hins háttsetta Íslandsvinar Sir Joseph Banks, og leita aðstoðar hans.
Sendibréf Magnúsar til Banks hratt af stað dramatískri atburðarás. Fyrir röð tilviljana leiddi það til þess að enskir sápukaupmenn rændu völdum á Íslandi og lýstu yfir sjálfstæði landsins en yfir það var settur danskur túlkur þeirra, Jörgen Jörgensen. Bréfið sem leiddi til byltingar fjallar um þessa atburði og hinn stutta en viðburðaríka valdatíma Jörundar hundadagakonungs á Íslandi. Hvernig brugðust Íslendingar við byltingunni? Var Jörundur bíræfinn ævintýramaður eða einlægur hugsjónamaður?