Brúðumeistarinn
Tveir drengir finnast látnir í Reykjavíkurhöfn árið 1975. Átta árum síðar fá fimm ólíkir einstaklingar dularfull bréf þar sem þeim er hótað dauða segi þau ekki sannleikann. Brátt finnst sá fyrsti látinn, í dauðanum stillt upp sem strengjabrúðu. Lögreglan etur kappi við tímann og eltir slóð morðingja. Daníel Ágúst les af skuggalegri innlifun.