Byssan og ólífan
Aldalöng átök um Ísrael og Palestínu
Mið-Austurlönd eru magnaður heimur, þar sem nútíðin er beintengd fortíðinni og goðsögnum hennar. Hér er frásögnin sett í sögulegt samhengi, þar sem aldalöng átök, stríð og hörmungar, allt frá biblíulegum tíma ætla engan endi að taka í eilífum ófriði. Megináherslan er á deilur Ísraels og Palestínu á síðustu 100 árum.
Sagan er yfir og allt um kring, með gyðingdóm, íslam og kristni í bakgrunni, þar sem kjarni átakanna hverfist um land, öryggi, sættir og réttlátan frið milli Ísraelsmanna og Palestínumanna. Skerpt er á skilningi á meginsögusviðinu og tvískinnungi alþjóðastjórnmálanna með hliðarsporum og staðfesta að við búum í margbrotnum og ófullkomnum heimi. Hér er skyggnst inn í framandi heim Mið-Austurlanda, þar sem framtíðin er bæði óviss og óræð enda veröldin ekki öll þar sem hún er séð. Langþráður friður er ekki í sjónmáli í Mið-Austurlöndum, því þar eru hvorki sjálfsákvörðunarréttur þjóða né mannúðarlög og mannréttindi virt. Mennskan hefur lotið fyrir ofbeldinu.