Dauðadæmd

Sakamál frá 18. öld

Forsíða kápu bókarinnar

Sumarið 1769 var ung vinnukona á bænum Gerði í Skagafirði ákærð fyrir að hafa alið barn á laun og drepið það. Hún hét Oddný og var 22 ára gömul. Nokkru seinna var hún dæmd til dauða, hún skyldi hálshöggvast og höfuð hennar sett á stjaka. Í bókinni er saga Oddnýjar og dulsmálsins rakin en jafnframt lýst glímu kvenna við réttarkerfið á 18. öld.

Oddný var dæmd fyrir svokallað dulsmál, en það voru sakamál þar sem sannað þótti að kona hefði leynt barnsfæðingu, myrt barnið eða borið það út, stundum í vitorði með barnsföður. Hátt á annað hundrað slíkra mála komu á borð íslenskra yfirvalda á tímabilinu 1600–1900.

Guðný Hallgrímsdóttir hefur lokið meistaraprófi í sagnfræði og starfar sem sjálfstætt starfandi fræðimaður. Rannsóknir hennar hafa einkum beinst að sögu kvenna á 18. öld en hún hefur birt fjölda greina á því sviði. Dauðadæmd er hennar þriðja bók. Fyrsta bók Guðnýjar, Sagan af Guðrúnu Ketilsdóttur: Einsögurannsókn á ævi 18. aldar vinnukonu, kom út árið 2013. Fyrir hana hlaut hún Fjöruverðlaunin árið 2014 í flokki fræðibóka. Bókin var einnig tilnefnd til viðurkenningar Hagþenkis sama ár. Önnur bók Guðnýjar, A Tale of a Fool? A Microhistory of an 18th-Century Peasant Woman, kom út hjá Routledge-forlaginu árið 2019.„Stórfengleg! Frábær og nútímaleg morðgáta.“ Relax and Read Book Reviews.