Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Dorgað í djúpi hugans

Bernsku- og æskuminningar frá sjötta og sjöunda áratug tuttugustu aldar

  • Höfundur Skúli Thoroddsen
Forsíða kápu bókarinnar

„Allt sem þú ert er frá öðrum komið.“ Lögfræðingurinn Skúli Thoroddsen pælir í meiningu þessara orða og fiskar upp lifandi atvik bernsku- og æskuáranna á myndrænan hátt – hvort heldur sem krakki á barnaheimili, unglingur í brúarvinnu eða sveitastrákur hjá Konunni í dalnum og dætrunum sjö.

Þá segir Skúli frá fyrstu ástinni og fer út í heim auk þess að bregða upp lifandi myndum af ættmennum sínum ýmsum og samferðarfólki. Ljóðrænar lýsingar hans á náttúru landsins, tónlist og skáldskap tilverunnar gera þessa bók að sannkölluðum yndislestri.

Athyglisverð uppvaxtarsaga um veröld sem var á sjötta og sjöunda áratug síðustu aldar.