Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Drag plóg þinn yfir bein hinna dauðu

Forsíða bókarinnar

Í afskekktri pólskri sveit eyðir Janina dögum sínum í að lesa stjörnuspeki, þýða kveðskap Williams Blake og sjá um sumarhús fyrir auðuga íbúa Varsjár. En einn daginn finnst nágranni hennar, sem hún kallar Háfeta, dauður við einkennilegar aðstæður. Olga Tokarczuk hlaut Bókmenntaverðlaun Nóbels 2018.

"Algjör snillingur." Egill Helgason, RÚV

Svo fjölgar hinum dauðu og eftir því sem rannsókn lögreglu vindur fram blandar Janina sér æ meira í hana þar sem hún þykist viss um hvað búi að baki morðunum.

Drag plóg þinn yfir bein hinna dauðu er bókmenntaleg glæpasaga og ævintýri sem er auk annars ögrandi rannsókn á hinum myrku og óljósu mörkum heilbrigðis og geðveiki, réttlætis og hefða, sjálfsstjórnar og örlaga. Bókin fékk frábærar viðtökur, var m.a. tilnefnd til hinna virtu, alþjóðlegu Man Booker-verðlauna árið 2019 og varð mikil metsölubók í Póllandi.

Olga Tokarczuk er einn virtasti rithöfundur heims og hlaut Bókmenntaverðlaun Nóbels árið 2018.

Árni Óskarsson þýddi.

"Algjör snillingur, líklega besti höfundur heimsins í dag."

Egill Helgason, Kiljan

"Brillíant. Þvílík viska og hugmyndaflug."

Kolbrún Bergþórsdóttir/Kiljan

„... ánægjulegt að fá í þessari fínu sögu á íslensku fyrirtaks listaverk úr hinum stórmerkilega pólska menningarheimi, eftir einn athyglisverðasta rithöfund samtímans,“ Einar Falur Ingólfsson, Morgunblaðinu 1/2

„Það verður að segjast alveg eins og er að Janina Duszejko er einhver magnaðasta bókmenntapersóna og skemmtilegasti en jafnframt bölsýnasti og bálreiðasti sögumaður sem hefur sprottið fram á síðum bókmenntanna um langa hríð ... Hún er um margt ný og fersk rödd sem aðalpersóna og sögumaður en á sama tíma á veröld hennar og hugmyndafræði djúpstæðar rætur í veröld heimsbókmenntanna.“ Magnús Guðmundsson, Orð um bækur/RÚV