Drangeyjarsaga
Saga Drangeyjar rakin og greint ítarlega frá þeim margvíslegu nytjum sem Skagfirðingar hafa haft af eyjunni, bæði fuglaveiðum, eggjatekju, fiskveiðum, búfjárhaldi og slægjum – og loks ferðaþjónustu á síðustu árum. Sagt er frá sigmönnum í Drangeyjarbjargi, djarffærni í klettum, slysförum á sjó og landi og mannlífinu í þessari gjöfulu veiðistöð.
Drangey á Skagafirði er sveipuð ævintýraljóma í hugum landsmanna, ekki síst af því að hún er sögusvið lokaþáttar Grettissögu og þar lauk lífi þessa frægasta út laga Íslandssögunnar. En í Drangey hafa gerst fleiri ævintýri því eyjan var öldum saman einhver arðsamasti blettur héraðsins – og ef til vill landsins alls. Í Drangeyjarsögu er saga eyjunnar rakin allt frá dögum Grettis og greint ítarlega frá þeim margvíslegu nytjum sem Skagfirðingar hafa af henni haft.