Drengur að nafni Blue
Ginny Carter átti eitt sinn framtíðina fyrir sér í sjónvarpsfréttamennsku. Hún var hamingjusamlega gift, átti þriggja ára son og lifði innihaldsríku lífi í Beverly Hills – þar til heimur hennar hrundi á einu andartaki á hraðbrautinni, tveimur dögum fyrir jól. Eftir harmleikinn reynir Ginny að byggja líf sitt upp að nýju og finna því tilgang.
Hún helgar sig mannréttindastörfum á nokkrum af hrjáðustu svæðum heims og reynir þannig að sættast við tilveruna og missinn. Á ártíð slyssins, þegar dauðalöngun sækir að henni, kynnist hún dreng sem á eftir að breyta lífi hennar. Blue Williams er þrettán ára og hefur lengi hafst við á götunni, yfirgefinn af fjölskyldu sinni. Ginny fylgir innsæinu og réttir honum hjálparhönd. Blue vantreystir öllum en smám saman styrkjast böndin á milli þeirra. Blue býr yfir óvenjulegum lífskrafti og heillandi blöndu af barnslegu sakleysi og þroska langt umfram aldur. Ginny sýnir honum virðingu og milli þeirra myndast einstakt samband. Þau verða hvort öðru sú fjölskylda sem bæði hafa misst. En einmitt þegar Blue er loks farinn að treysta Ginny kemst hún að átakanlegum svikum sem hann hefur leynt. Er sárið of djúpt til að það geti gróið – eða tekst henni að heyja þá baráttu sem gæti gert þau bæði heil á ný?