Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Dýrin undir ljósadýrðinni

  • Höfundar Vera Illugadóttir og Illugi Jökulsson
Forsíða kápu bókarinnar

Skemmtilegustu, fallegustu, merkilegustu og skrýtnustu dýrin sem lifa á hinum köldu slóðum undir norðurljósum og suðurljósum. Ísbirnir, hvalir, læmingjar, úlfar, sauðnaut, sækýr og öll hin.

Marglit og merkileg, hlýleg en hörð af sér, einstök og athyglisverð. Frábær dýr í makalausu umhverfi. Þeim verðum við að kynnast.

Feðginin Vera Illugadóttir og Illugi Jökulsson hafa lengi getið sér gott orð fyrir að skrifa skemmtilegan, spennandi og fróðlegan texta fyrir fólk á öllum aldri.