Eldraun Gilberts Pinfold
Gilbert Pinfold er hlédrægur, katólskur rithöfundur sem glímir við svefnleysi og ritstíflu. Í von um hvíld heldur hann í langferð með farþegaskipi. En þar fara brátt undarlegir hlutir að gerast. Bráðfyndin skáldsaga um raunir miðaldra rithöfundar eftir eitt af höfuðskáldum enskra bókmennta á tuttugustu öld.
Eldraun Gilberts Pinfold er þriðja skáldsaga Evelyn Waugh sem kemur út í íslenskri þýðingu, en áður hefur Ugla gefið út Endurfundi á Brideshead (2019) og Handfylli moldar (2021).