Endurminningar frá Eskifirði
Svipmyndir frá miðri síðustu öld
Á Eskifirði sleit Þorsteinn Skúlason barnsskónum. Þar átti hann heima frá fæðingu 1940 og þar til hann fluttist í höfuðstaðinn 1957. Í endurminningum sínum snýr hann aftur á æskuslóðirnar, rifjar upp gamla tíma og dregur upp skýra mynd og skemmtilega af mannlífinu á Eskifirði og Austurlandi um miðja síðustu öld og koma margir við sögu.
Endurminningar á Eskifirði er forvitnileg heimild um horfinn tíma og ekki síður um fallega bæinn undir Hólmatindi.