Eyja og sólarsteinninn

Forsíða kápu bókarinnar

Eyja vaknar á hverjum morgni til að hlúa að ljósinu í vitanum. Mamma hennar hefur verið í burtu lengur en nokkru sinni áður og í ljós kemur að Eyja er ekki sú eina sem saknar foreldra sinna. Allt fullorðna fólkið á Hrafnsey er horfið. Fótspor við hrygginn benda til þess að einhver hafi stigið fæti þangað sem aldrei má fara.

Eyja og sólarsteinninn er ljóðræn og spennandi ævintýrasaga um vináttu, hugrekki og að rata í myrkri – jafnvel þegar ekkert ljós virðist vísa veginn.

Ragnheiður Harpa Leifsdóttir las allar ævintýrabækur og þjóðsögur sem til voru á skólabókasafninu hennar. Síðan hafa sögur og bækur ofið sér leið inn í líf hennar og störf.

Hún hefur gefið út fjölda bóka, sett upp leiksýningar og innsetningar og samið verk fyrir útvarp. Ragnheiður Harpa er ein Svikaskálda, en skáldsagan þeirra Olía, var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna árið 2021.

Eyja og sólarsteinninn er fyrsta barnabók hennar.