Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Færðu mér stjörnurnar

Forsíða bókarinnar

Árið 1937 flytur hin nýgifta enska Alice til Kentucky þar sem hennar bíður óvæntur og erfiður veruleiki með bandarískum eiginmanni sínum. Ástin dofnar og þegar hinn auðugi og valdamikli tengdafaðir hennar snýst gegn henni og vinkonum hennar er skyndilega frelsi þeirra og líf í hættu.

Árið 1937 hittir Alice hinn unga, myndarlega og auðuga Bandaríkjamann Bennett og ákveður að giftast honum og yfirgefa heimaland sitt, England. Hún flytur til Kentucky þar sem hennar bíður óvæntur og erfiður veruleiki. Hin brennandi ást milli hjónanna verður smám saman að gagnkvæmri andúð og það er ekki fyrr en Alice kynnist Margery og fleiri konum að gleðin kemur aftur inn í líf hennar. En þegar hinn auðugi og valdamikli tengdafaðir hennar snýst gegn konunum er skyndilega frelsi þeirra og líf í hættu.

Ógleymanleg saga um vináttu og samvinnu hugrakkra kvenna sem þurfa að berjast gegn eitruðu ægivaldi auðs, kvenfyrirlitningar og haturs.

Jojo Moyes er einn vinsælasti rithöfundur Bretlands og hafa selst rúmlega 38 milljónir eintaka af bókum hennar um allan heim.