Ferðalok
Skýrsla handa akademíu
Laust eftir síðustu aldamót sá íslenskur bókmenntafræðingur fyrir sér að líkamsleifarnar sem hvíla í gröf Jónasar Hallgrímssonar á Þingvöllum yrðu sendar til DNA-greiningar á danskri rannsóknarstofu. Hann samdi ótímabæra skýrslu til að tryggja að erfðafræðingurinn, sem annast myndi rannsóknina, gæti glöggvað sig á viðfangsefninu.
Að baki bjó djúpstæð löngun höfundar til að fá botn í íslenska þjóðarsál. Í tilefni þess að galgopalegur spádómur Jóns Karls Helgasonar gæti bráðlega ræst birtist skáldfræðirit hans Ferðalok. Skýrsla handa akademíu hér í nýrri útgáfu. En hvatki er missagt er í fræðum þessum þá er skylt að hafa það heldur er sannara reynist.