Flærðarsól
Úlfar var djúpt sokkinn í að setja saman marglaga minningar þegar hann var skyndilega úrskurðaður dauðvona. Það bætti nýrri vídd við verkið – lífið breytist þegar dauðinn er afhjúpaður þar sem hann liggur í leyni.
Úlfar úrskurðaði sig meira lifandi en dauðvona og hélt sínu daglega lífi áfram með dauðann sem ferðafélaga. Það glæðir þessa óvenjulegu bók lífi – en hún er um leið óður til dauðans.