Fleipur

sögur

Forsíða kápu bókarinnar

Er ástæða til að leiðrétta heillandi konu sem heldur að maður sé Magnús Tumi jarðeðlisfræðingur? Hvað gerist þegar sóprandíva í kirkjukór gerist talibani tónlistarinnar? Hvernig þekkti jólasveinninn litla héraskinnið í kvæðinu? Óvenjulegt og bráðskemmtilegt sagnasafn.

Hvernig stendur á því að Mannsi í Hvammi heldur sinni engilbjörtu sópranrödd?

Í þessu óvenjulega og bráðskemmtilega sagnasafni stíga fram ýmsar óvæntar persónur, sumar kunnuglegar, og kveða sér hljóðs. Beinskeytt írónía er gegnumgangandi og kemur oft flatt upp á lesanda, því höfundur er fundvís á grátbroslegar aðstæður og mannlega veikleika.

Þórunn Guðmundsdóttir hefur lengst af starfað sem söngkona og tónlistarkennari. Hún hefur skrifað fjölmörg leikrit og söngleiki auk þess sem sönglög hennar hafa verið prentuð. Á undanförnum árum hefur hún getið sér gott orð sem höfundur ópera sem hafa verið fluttar af sviðslistahópunum Animato og Hnoðra í norðri.