Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Fótboltaspurningar Illuga Jökulssonar

  • Höfundur Illugi Jökulsson
Forsíða kápu bókarinnar

Hér er komin mögnuð spurningabók sem snýst eingöngu um fótbolta! Í bókinni eru 15 leikir sem innihalda 15 spurningar hver. Alls 225 spurningar! Veistu allt um fótbolta? Nú kemur það í ljós!

Illugi Jökulsson hefur samið spurningagetraunir í fjöldamörg ár og kann listina að blanda saman léttum og þungum spurningum svo úr verður hörkuspennandi keppni. Illugi er þekktur fyrir að vita mikið um margt og það þarf ekki að koma á óvart að hann veit nánast allt um fótbolta.