Framtíðin á ferðinni
Stelpa og strákur hittast óvænt í erlendri borg og verða ástfangin. Þau koma úr ólíkum menningarheimum og átta sig fljótt á því að þeirra bíða margar og erfiðar hindranir eigi heitar tilfinningar að dafna. Ástin er voldugt afl en nær miskunnarlaus veruleikinn að buga hana?
Í þessari hugstæðu skáldsögu tekst Þórhildur Ólafsdóttir á við áleitið efni sem lítt hefur verið fjallað um í íslenskum bókmenntum. Sagan talar beint til nútímans þótt höfundur sviðsetji hana í Reykjavík, París og litlu þorpi á Íslandi fyrir hálfri öld. Löngu liðnum tíðaranda er lýst á næman og áhrifaríkan hátt og persónur bókarinnar verða ljóslifandi fyrir augum lesenda.
Ólöf Þórhildur Ólafsdóttir lauk doktorsprófi í frönskum bókmenntum við Háskólann í Orléans í Frakklandi árið 1982. Hún var lektor og síðar dósent í frönsku við Háskóla Íslands í nokkur ár. Frá árinu 1988 hefur hún verið búsett í Strasbourg í Frakklandi þar sem hún starfaði við Evrópuráðið í aldarfjórðung. Hún hefur áður sent frá sér meðal annars skáldsögu og ljóðabók auk þýðinga á bókum Nóbelsverðlaunahafans Annie Ernaux.