Frelsisbjarmar

Bandaríkin á öldinni okkar: Hryðjuverkastríð, efnahagshrun og endalok heimsveldis

Forsíða kápu bókarinnar

Hér er fjallað um Bandaríkin á 21. öld, uppruna og afleiðingar 11. september, efnahagshrunið sem öllu breytti og sundrung þjóðarinnar. Að hætti hússins fléttar höfundur eigin upplifanir inn í frásögnina. Bruce Springsteen kemur nokkuð við sögu og jafnvel Rocky er sóttur heim í þessu landi sem ávallt virðist geyma bæði það besta og það versta.

Tvö hundruð og fimmtíu ár eru liðin frá stofnun Bandaríkjanna og tuttugu og fimm ár frá þeim atburði sem mótað hefur nútímann svo mjög, árásirnar 11. september 2001. Valur Gunnarsson drekkti sér í amerískri dægurmenningu sem unglingur og sneri sér svo að sagnfræðinni. Hér fjallar hann um áhrif Bandaríkjanna, herstöðina á Íslandi, uppruna og afleiðingar 11. september, efnahagshrunið sem öllu breytti og sundrung þjóðarinnar. Bandaríkin voru á hátindi valda sinna í upphafi aldar en síðan þá hefur dregið úr mætti þeirra og heimsmyndin riðlast ört. Til að kanna hvernig við komumst hingað og hvað gerist næst þarf að skoða öldina okkar en jafnframt seilast aftur til upphafsins til að skilja þetta þjóðfélag sem framar öðrum var byggt á hugmyndum og draumum.

Að hætti hússins fléttar höfundur eigin ferðalög og persónulegar upplifanir inn í frásögnina. Æskuhetjan Bruce Springsteen kemur nokkuð við sögu sem og Leonard Cohen-hátíð í Minnesota, og jafnvel Rocky er sóttur heim í þessu landi sem ávallt virðist geyma bæði það besta og það versta.

Valur Gunnarsson lærði sagnfræði við Háskóla Íslands, Háskólann í Helsinki, Humboldt-háskóla í Berlín og Kúras-stofnunina í Kænugarði jafnt sem ritlist í Belfast og Norwich. Hann hefur sent frá sér fjölda bóka, þar á meðal Grænland og fólkið sem hvarf sem fjallar um ráðgátuna um norræna fólkið á Grænlandi, Berlínarbjarma þar sem hann kryfur sögu hinnar margslungnu borgar frá ýmsum hliðum og Bjarmalönd sem greinir frá arfleifð Sovétríkjanna í Austur-Evrópu. Tvær bóka hans hafa komið út á ensku og ein er væntanleg á hindí. Þetta er ellefta bók hans.

Fyrri bækur höfundar

Vanished Vikings, 2026

Grænland og fólkið sem hvarf, 2025

Berlínarbjarmar: Langamma, David Bowie og ég, 2024

Stríðsbjarmar: Úkraína og nágrenni á átakatímum, 2023

What If Vikings Had Conquered the World and Other Questions of Icelandic and Nordic History, 2023

Hvað ef?, 2022

Bjarmalönd: Rússland, Úkraína og nágrenni í nútíð, fortíð og framtíð, 2021

Örninn og fálkinn, 2017

Síðasti elskhuginn, 2013

Konungur norðursins: Harmsaga Ilkka Hampurilainen I, 2007