Fúleggin
Gogga dreymir um að verða besti fótboltafugl í heimi! Hann sefur með bolta á næturnar, dreymir um gullmedalíur og æfir á hverjum degi með yngri deild Haukaliðsins. Þegar hann verður ekki fyrir valinu í aðalliðinu, hrynur allur heimur hans. Þá uppgötvar Goggi nokkuð sem breytir öllu.
Það eru engar reglur sem segja að lið þurfi að vera skipað fuglum af sömu tegund. Þannig hefur það þó alltaf verið. Ásamt vinum sínum stofnar Goggi því óvenjulegt lið fugla af margs konar tegundum. Fúleggin er uppörvandi og skemmtileg fótboltabók fyrir öll börn sem elska íþróttir. Saga um drauma og ósigra, um að standa utan hópsins, finna sinn stað og þora að ögra því hvernig hlutirnir hafa alltaf verið gerðir.
Ragnar Sigurðsson byggir bókina á eigin reynslu sem atvinnumaður í knattspyrnu.