Fylling

Forsíða kápu bókarinnar

Ritið kom út í tengslum við samnefnda sýningu Unu Bjargar Magnúsdóttur í Hafnarborg. Útgáfan er á íslensku og ensku og hefur að geyma texta eftir Lani Yamamoto og Ragnar Helga Ólafsson, auk viðtals Páls Hauks Björnssonar við listamanninn. Einnig eru í ritinu inngangstexti sýningarinnar og fjöldi ljósmynda, teknar af Vigfúsi Birgissyni.

Í verkum sínum beitir Una Björg Magnúsdóttir ýmsum aðferðum til að velta upp spurningum um fegurð, gildi, tilvist, hegðun og hátterni. Með áferð, gildishlöðnum efnum og nákvæmum uppstillingum kannar hún óræð skil hins raunverulega og eftirlíkingar og ýtir við hefðbundnum hugmyndum um merkingu og skynjun. Hönnun ritsins var í höndum Hrefnu Sigurðardóttur.