Fylling
Ritið kom út í tengslum við samnefnda sýningu Unu Bjargar Magnúsdóttur í Hafnarborg. Útgáfan er á íslensku og ensku og hefur að geyma texta eftir Lani Yamamoto og Ragnar Helga Ólafsson, auk viðtals Páls Hauks Björnssonar við listamanninn. Einnig eru í ritinu inngangstexti sýningarinnar og fjöldi ljósmynda, teknar af Vigfúsi Birgissyni.