Blóðbönd Galdra-Imba
Söguleg skáldsaga sem gerist á Íslandi á hinni myrku galdraöld og fjallar um prestdótturina Ingibjörgu Jónsdóttur eða Galdra-Imbu, eins og hún var kölluð.
Á björtu vorkvöldi á 17. öld fæðist presthjónum norður í landi stúlkubarn. Stúlkan er frábrugðin öðrum börnum hjónanna - augun dökk sem nóttin og hugur hennar dreymandi. Stúlkunni Imbu er komið í fóstur hjá Leodegarius, vitrum manni við Hrafnagil, í þeirri von að hann geti alið úr henni hvatvísi.
Líf Imbu er þyrnum stráð og ung er hún gefin ekklinum séra Árna. Örlögin vinna gegn henni en þrátt fyrir erfiðleika er hún staðráðin í að finna hamingju í lífinu. Blóðbönd er ný sería úr smiðju Söndru Clausen um Galdra-Imbu sem var uppi á 17. öld. og forfeður hennar. Hér er á ferðinni söguleg skáldsaga um ástir og örlög á erfiðum tímum.