Blóðbönd 2 Galdra-Þura

Forsíða kápu bókarinnar

Um æðar Þuru rennur galdrablóð í arf frá móður hennar, Galdra-Imbu. Hana dreymir fyrir voveiflegum atburðum og les í rúnir. Faðir hennar er sakaður um galdra og ofbeldi ríkir heima við. Þegar dularfullur maður kemur inn í líf hennar blómstrar ástin, en Þura þarf að taka afdrifaríkar ákvarðanir. Önnur bókin í seríunni Blóðbönd eftir Söndru Clausen.