Gamanleikir

Forsíða kápu bókarinnar

Gamanleikir Hróðsvitu frá Gandersheim (10. öld. e.Kr.) eru fyrstu kristnu leikritin og fyrstu varðveittu leikrit heims samin af konu. Leikritin fjalla um togstreituna milli holds og anda, örvæntingar og fyrirgefningar, ranglætis og réttrar skipanar heimsins. Hér birtast gamanleikir Hróðsvitu í fyrsta sinn á íslensku, þýddir úr miðaldalatínu.