Gísli Súrsson

1. Úr stríði í frið

Forsíða kápu bókarinnar

Ein ástsælasta Íslendingasagan er nú komin út sem myndasaga. Alvestfirsk framleiðsla; höfundurinn býr í sögusviðinu miðju. Fyrsta bók af fjórum um þessa örlagaþrungnu sögu um ástir, vináttu og átök. Þessi útgáfa er fyrir fólk á öllum aldri, ekki síst skólabörn. Bókin kemur samtímis út á þýsku.

Ein vinsælasta Íslendingasagan er án nokkurs efa Gísla saga Súrssonar. Um hana hefur verið gerð vinsæl kvikmynd þar sem Arnar Jónsson fór á kostum í hlutverki Gísla. Einnig gerði Kómedíuleikhúsið vinsælan einleik sem er ein mest sýnda leiksýning landsins og vann til fjölda verðlauna á erlendri grundu. Nú loksins kemur út myndasaga byggð á Gísla sögu Súrssonar. Svo stórt er verkefnið að myndasagan mun koma út í fjórum bindum. Höfundar verksins eru báðir búandi listamenn á Vestfjörðum. Textahöfundurinn, Elfar Logi Hannesson, býr meira að segja á söguslóðum sögunnar og er sá er lék einleikinn um Gísla Súrsson hér um árið. Myndasmiðurinn, Ómar Smári Kristinsson, býr í þar næsta firði og teiknar þar Gísla sögu sem og vinsælu bæjarkortin og Fagra ferðamannakortið auk þess að vera höfundur hinna vel gerðu Hjólabóka.

Sumar sögur eldast betur en aðrar, jafnvel svo vel að þær eru lesnar í mörg hundruð ár og ganga áfram leskynslóð af leskynslóð. Ein þessara sagna er án efa Gísla saga Súrssonar sem lesin hefur verið í mörg árhundruð enda ein vinsælasta og mest lesna Íslendingasagan. Afhverju er Gísla saga svona vinsæl? Svarið er einfalt því Gísla saga hefur allt sem góð saga þarf að hafa. Fyrst skal nefna aðalpersónur sögunnar sem eru allt í senn sterkar, heillandi og sérstæðar. Þannig fanga þær lesandann strax og eru ljóslifandi. Sagan sjálf er svo einsog hin albesta spennusaga. Hún hefur allt sem til þarf: ástir, örlög og allt þar á milli. Það er mikilvægt að segja hverja sögu á sem fjölbreyttastan hátt. Nú er loksins komið að Gísla myndasögu Súrssonar. Höfundar og aðstandendur bókarinnar eru allt mikið áhugafólk um Íslendingasögurnar og þá ekki síst í viðleitni til þess að túlka sögurnar í eigin list einsog þetta bókverk sýnir.