Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Guðni á ferð og flugi

Forsíða bókarinnar

Hér fer Guðni með lesandann í ferðalag um hinar dreifðu byggðir Íslands og heimsækir fólk af öllu tagi sem á það sameiginlegt að vera skemmtilegir og forvitnilegir viðmælendur. Í þessum heimsóknum er Guðni yfir og allt um kring og hin landskunna „guðníska“ skýtur hvað eftir annað upp kollinum.

Guðni Ágústsson er annálaður sagnamaður og einn vinsælasti tækifærisræðumaður þjóðarinnar. Í hugum margra er hann enn hinn eini sanni landbúnaðarráðherra Íslands – og um leið ötull talsmaður landsbyggðarinnar.

Hér fer Guðni með lesandann í ferðalag um hinar dreifðu byggðir Íslands og heimsækir fólk af öllu tagi. Fyrir utan að vera skemmtilegir og forvitnilegir viðmælendur fæst það við spennandi og oft og tíðum nýstárleg viðfangsefni sem styrkja lífið í sveitunum. Í þessum heimsóknum er Guðni yfir og allt um kring og hin landskunna „guðníska“ skýtur hvað eftir annað upp kollinum.

Guðjón Ragnar Jónasson fylgdi Guðna á þessum ferðum og hefur skrásett á aðgengilegan og grípandi hátt það sem á daga þeirra dreif.

Skemmtileg, fyndin og um leið upplýsandi bók um lífið í sveitum landsins sem rígheldur lesandanum í fylgd með Guðna Ágústssyni frá Brúnastöðum.