Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Halldór H. Jónsson arkitekt

  • Höfundar Pétur H. Ármannsson og Björn Jón Bragason
Forsíða bókarinnar

Halldór H. Jónsson arkitekt er í senn kunnur sem höfundur þjóðþekktra bygginga og einn helsti áhrifamaður í íslensku athafnalífi á 20. öld. Samhliða rekstri eigin teiknistofu varð hann snemma eftirsóttur til forystustarfa í atvinnurekstri og var á seinni árum gjarnan nefndur „stjórnarformaður Íslands“ vegna setu sinnar í stjórnum stórfyrirtækja.

Þrátt fyrir áhrif hans og tengsl í íslensku þjóðlífi hélt Halldór sig alla tíð til hlés á opinberum vettvangi og veitti afar sjaldan viðtöl í fjölmiðlum. Sagan af ævi og athöfnum Halldórs H. Jónssonar er merkur en lítt þekktur kapítuli í sögu atvinnulífs og byggingarlistar á Íslandi á 20. öld. Í bókinni er fjöldi ljósmynda og teikninga ásamt skrá yfir verk arkitektsins.