Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Handfylli moldar

  • Höfundur Evelyn Waugh
  • Þýðandi Hjalti Þorleifsson
Forsíða bókarinnar

Eftir sjö ára hjónaband hefur hin fagra lafði Brenda fengið nóg af lífinu á gotneska sveitasetrinu sem er stolt og yndi eiginmanns hennar, Tonys. Hún fer að halda við hinn grunnhyggna John Beaver, yfirgefur Tony og hverfur á vit samkvæmislífsins í London.
Óvænt örlög bíða söguhetjanna í þessari óviðjafnanlegu skáldsögu sem er í senn harmræn og kómísk.