Harðjaxlinn ljúfi

Ævisaga Óla Þórðar

Forsíða kápu bókarinnar

Mesti harðjaxl íslenskrar fótboltasögu tekur til máls! Frá fjörugri barnæsku á Neðri-Skaga, þar sem Merkurtúnið var heimavöllurinn, til viðureigna við bestu knattspyrnumenn heims hefur hann farið sínar eigin leiðir af einurð, heiðarleika og óbilandi keppnisskapi – og áunnið sér virðingu sem óumdeildur leiðtogi, jafnt innan vallar sem utan.

Í þessari einstöku ævisögu segir Óli frá knattspyrnuferlinum sem leikmaður og þjálfari, sigrunum, vonbrigðunum, fórnunum og því sem hefði getað orðið. Ótrúlegar sögur úr boltanum eru á hverju strái en jafnframt veitir hann einlæga og hispurslausa innsýn í líf sitt og fjölskyldu sinnar. Söguna auðga jafnframt litrík viðtöl við fjölmarga samferðamenn Óla.

„Óli Þórðar er heilsteypt manneskja og frábær karakter, skemmtilegur orðhákur og alltaf rífandi kjaft!

“

Guðni Bergsson, fyrrverandi landsliðsmaður

„Uppgjöf og aumingjaskapur er ekki til í hans orðabók. En örfá blótsyrði!

“

Þorgrímur Þráinsson, fyrrverandi landsliðsmaður

„Það er langt síðan ég hef haft jafngaman að ævisögu íþróttamanns. Ég hló stundum upphátt, eins og þegar Óla þótti nóg um „óhemjuskapinn“ hjá konu sinni á fæðingardeildinni og fór að líkja sársaukanum við barnsburðinn við einhver fótameiðsli sem hann spilaði í gegnum! Kannski líkaði mér bókin líka svona vel vegna þess að ég hef alltaf borið ótakmarkaða virðingu fyrir dugnaði og af honum var nóg hjá Óla og hans ætt. Bókin sýnir Óla vissulega sem harðjaxl en samt ber öllum saman um gott hjartalag hans.“

Ólafur Garðarsson, hrl. og umboðsmaður knattspyrnumanna