Harmurinn í hlátrinum
Hildur Eir Bolladóttir er prestur og skáld. Árið 2017 hlaut hún tilnefningu til Fjöruverðlaunanna fyrir Hugrekki – saga af kvíða. Þá hefur hún einnig gefið út ljóðabækurnar Líkn og Meinvarp auk smásögu sem kom út fyrr á þessu ári í Pastelritröðinni og ber heitið Prestur fer á stefnumót.
Harmurinn í hlátrinum er fimmta bók höfundar sem einnig er kunn af pistlum sínum um málefni líðandi stundar.