Hernámsæskan
Áhrif seinni heimsstyrjaldarinnar á íslenskt æskufólk
Það má segja að hernámið sé ein stærsta stundin í sögu þjóðarinnar. En hvernig upplifðu Íslendingar stríðsárin og hver voru samskiptin við herinn? Með því að skoða þessi örlagaríku ár út frá unga fólkinu má draga upp mynd af miklum umbrotum. Herinn kom með vopn og vinnu en honum fylgdu einnig menningarstraumar sem höfðu mikil áhrif á æskulýðinn.
Þjóðleg sveitamennska mátti sín lítils fyrir spjátrungslegum klæðnaði, dillandi djasstónum, Coca Cola og töffaralegri framkomu. Hér fléttast þetta allt saman í litríkum frásögnum sem enginn áhugamaður um íslenska sögu lætur fram hjá sér fara.