Holtssaga
Holt undir Eyjafjöllum var höfuðból í héraði í meira en þúsund ár og lengst af helgur kirkjustaður. Þar hefst sagan sem rakin er í þessari bók, og nær til ábúenda á staðnum og fólksins í sveitinni. Hér tengjast saman víddir tímans, hestar og menn, fjöll og fjara, galdrar og góðkvendi, hvaðeina fær hér sitt rými í samhangandi sögu.
Sögusviðið undir Eyjafjöllum ilmar af sögnum um samskipti manna við náttúruna, stundum gjöfula, stundum grimma. Hér koma við sögu aðsópsmiklir staðarprestar og stórskáld, draugar og forynjur, bændauppreisn og búnaðarnýjungar, karlar og konur. Höfundur segir í aðfaraorðum: „Með sögu Holts er reynt að tengja saman víddir tímans; hestar og menn, fjöll og fjara, bylting og afturhald, galdrar og góðkvendi, þjóðhættir og þjóðsögur, hvaðeina fær sitt rými í samhangandi sögu."