Hótel Héðinsfjörður

Forsíða kápu bókarinnar

Vinkvennahópur er mættur á gönguskíðanámskeið á glænýtt lúxushótel í Héðinsfirði, þar sem annars enginn býr. Hótelið er í eigu einnar úr hópnum, hinnar dularfullu Herdísar Karlsdóttur, uppgangskonu sem hefur auðgast mjög í tæknigeiranum.Fljótlega kemur á daginn að gamlar væringar krauma enn undir og á þriðja degi finnst ein úr hópnum myrt.

Og fyrir utan er glórulaus stórhríð.

Hótel Héðinsfjörður er bæði fyndin og spennandi saga um vináttu, öfund, afbrýði – og fortíðardrauga.

Birna Anna Björnsdóttir er þekktust fyrir skáldsöguna Dís, sem hún skrifaði ásamt Silju Hauksdóttur og Oddnýju Sturludóttur, og varð metsölubók og síðar einnig að kvikmynd. Þetta er hennar fimmta bók.