Sería Sögufélags Hringvegurinn - 1974
Árið 1974 var hringvegurinn um Ísland opnaður með vígslu Skeiðarárbrúar, vegur sem áður hafði varla verið til í villtustu draumum landsmanna. Bókin fjallar um opnun hringvegarins í samhengi við íslenska samgöngusögu á landi, í lofti og á sjó. Hvaða þýðingu höfðu greiðari samgöngur fyrir byggðina í þessu hrjóstruga landi og samband manns og náttúru?
Laust eftir hádegi sunnudaginn 14. júlí 1974 hófust á Skeiðarársandi hátíðarhöld við nýbyggða brú yfir Skeiðará. Þennan dag var hringvegurinn um Ísland opnaður, vegur sem til skamms tíma hafði ekki einu sinni verið til í villtustu draumum landsmanna.
Hringvegurinn fjallar um hina sögulegu vígslu Skeiðarárbrúar í samhengi við íslenska samgöngusögu á landi, í lofti og á sjó. Hvaða þýðingu höfðu greiðari samgöngur fyrir byggðina í þessu hrjóstruga landi og samband manns og náttúru?