Hugvekjur um söfn og samfélag

Forsíða kápu bókarinnar

Hér er teflt fram ögrandi og gagnrýnum viðhorfum um eignarhald, réttlæti, menntun og sjálfbærni safna í nútímasamfélagi. Höfundur byggir á rúmlega þrjátíu ára reynslu af safnastarfi, sem starfsmaður, stjórnandi og fræðimaður. Í bókinni eru því ekki eingöngu fræðilegar pælingar, heldur persónuleg afstaða manns sem þekkir stofnanirnar innan frá.