Hún er hér
Hún er hér er önnur bókin um miðilinn Rósu. Hún er fengin til að hjálpa ungum dreng sem verður fyrir óhugnanlegri ásókn sem engin augljós skýring virðist vera á. Í leit sinni að svörum opnar Rósa á myrk leyndarmál fortíðarinnar þar sem dökk fjölskyldusaga tekur smám saman á sig óþægilega mynd.