Huppa frá Kluftum
Ættmóðir íslenska kúastofnsins
Huppa frá Kluftum er ættmóðir allra nautgripa af íslenska kúakyninu en á þessu ári eru 100 ár frá fæðingu hennar. Má fullyrða að væri ættarskrá til fyrir þá alla kæmi Huppa að jafnaði a.m.k. 100 sinnum fyrir hjá hverjum grip. Hér er fjallað um uppruna hennar og áhrif hennar á erfðamengi íslenska kúastofnsins o.fl. o.fl.
Bókin byrjar á að gefa yfirlit um umhverfið sem Huppa lifði og hrærðist í á Kluftum, heiðarkoti í Hrunamannahreppi. Síðan er ætt hennar rakin og uppruni. Gerð er grein fyrir hinni ótrúlegu endingu og frjósemi hennar og dreifingu gena hennar um allt land. Þá er stuttlega fjallað um ræktunarkjarnann á Stóra-Ármóti, Huppuhornið, farandgrip sem veittur er fyrir kynbótastörf, litafjölbreytni íslenskra nautgripa og um helstu áhrifamenn um dreifingu Kluftastofnsins en þeir voru Páll Zóphóníasson og Hjalti Gestsson frá Hæli, auk fræði- og heimamannsins Helga Haraldssonar á Hrafnkelsstöðum. Loks er fjallað um áhrif Huppu á erfðamengi íslenskra nautgripa í dag. Þar kemur m.a. fram að þau eiga sér engar hliðstæður, hvorki í íslenskri nautgriparækt né hjá öðru þekktu kúakyni með jafn mikla notkun og íslensku kýrnar.