Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Hve aumir og blindir þeir eru

Dionysius Piper á Íslandi 1740–1743

  • Ritstjóri Sumarliði R. Ísleifsson
  • Þýðandi Gunnar Kristjánsson
  • Höfundar Joanna Kodzik, Sumarliði R. Ísleifsson og Gunnar Kristjánsson
Forsíða kápu bókarinnar

„Hinn 2. júlí var presturinn hér við altarisgöngu, en svo drukkinn var hann, að ömurlegt var á að horfa“. Þannig lýsti Herrnhútatrúboðinn Dionysius Piper kynnum af íslenskum presti. Bréf Pipers og önnur gögn, tengd veru hans á Íslandi, birtast í þessari bók, auk inngangstexta.