Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Í belg og biðu

Spjallbók

  • Höfundur Sveinn Einarsson
Forsíða kápu bókarinnar

Enn bregður höfundur á leik í nýrri spjallbók með örsögum, ljóðum og minningaleiftrum frá langri og viðburðaríkri ævi. Hann rabbar við lesendur í þeim stíl sem kallaður hefur verið causeries á útlensku jafnframt því að mæla fram gömul og ný ljóð.

Árið 2024 sendi Sveinn frá sér spjallbókina Þú ert mitt sólskin. Núna heldur hann ótrauður aftur af stað og beitir ekki ósvipuðum tökum.

Í tæplega sextíu köflum flakkar hann um tímasviðið, stundum í léttum dúr þar sem hin munnlega frásagnarlist er með í för, stundum bregður hann upp minningum frá langri og viðburðaríkri ævi og stundum er hann á heimspekilegum nótum, en skáldskapurinn skipar óneitanlega hærri sess nú en oft áður, einkum ljóðin.